Forsjá felur í sér rétt og skyldu til að ráða persónulegum högum barns og taka ákvarðanir um mál þess, sbr. 28. gr. barnalaga nr. 76/2003. Foreldrar sem skilja eða slíta sambúð fara áfram sameiginlega með forsjá nema um annað sé samið eða dæmt. Það sem oftast er deilt um er hjá hvoru foreldrinu barnið á lögheimili, því lögheimilisforeldrið tekur ákvarðanir um daglegt líf barnsins og fær meðlag og barnabætur.
Hver er munurinn á forsjá og lögheimili?
Foreldrar með sameiginlega forsjá taka saman stærri ákvarðanir: um nafn barnsins, trúfélag, flutning úr landi, ættleiðingu og læknismeðferð sem er meira en venjubundin. Hvorugt getur tekið slíkar ákvarðanir eitt.
Barn getur aðeins átt eitt lögheimili. Foreldrið sem barnið á lögheimili hjá tekur ákvarðanir um daglegt líf þess, sbr. 28. gr. a barnalaga: hvar barnið gengur í leikskóla eða skóla, hvaða tómstundir það stundar, hvar innanlands það býr og hvernig daglegri umönnun er háttað. Þess vegna snúast flest forsjármál fyrir dómi um lögheimilið. Krafa um að forsjá verði alfarið hjá öðru foreldrinu er sjaldgæfari og tekin til greina þegar samstarf um sameiginlega forsjá er talið óraunhæft.
Frá 2022 er hægt að semja um skipta búsetu barns hjá sýslumanni. Þá taka foreldrar saman ákvarðanir um daglegt líf barnsins og hvorugt greiðir hinu meðlag. Það krefst þess að foreldrar búi nálægt hvort öðru og að samvinna þeirra sé góð.
Getur lögheimilisforeldrið flutt með barnið?
Innanlands, já, en það verður að tilkynna hinu foreldrinu flutninginn með minnst sex vikna fyrirvara, sbr. 51. gr. barnalaga. Flutningur úr landi krefst samþykkis beggja foreldra þegar forsjá er sameiginleg. Flutningur sem gerir umgengni erfiða getur orðið tilefni til nýs máls um lögheimilið.
Hvenær þarf lögmann?
- Þegar samningar nást ekki hjá sýslumanni og málið stefnir fyrir dóm.
- Þegar annað foreldrið vill breyta gildandi fyrirkomulagi, til dæmis flytja með barnið.
- Þegar krefjast þarf forsjár eða lögheimilis til bráðabirgða meðan mál er rekið, sbr. 35. gr. barnalaga.
- Þegar hitt foreldrið hefur þegar leitað til lögmanns.
Hvað ræður niðurstöðu?
Dómurinn metur hvað barninu er fyrir bestu. Í því mati vega þyngst hæfi hvors foreldris, tengsl barnsins við þau, stöðugleiki í lífi þess, vilji barnsins eftir aldri og þroska og hvort foreldri er líklegt til að virða rétt barnsins til umgengni við hitt foreldrið. Dómkvaddur matsmaður, oftast sálfræðingur, leggur mat á þessi atriði og skilar rökstuddri matsgerð.
Hvernig vinnum við málið?
Sé þér boðið að skrifa undir samning um forsjá og lögheimili hjá sýslumanni er gott að lesa hann með það í huga hvað lögheimilið felur í sér. Sértu ósáttur við gildandi fyrirkomulag er fyrsta skrefið beiðni um sáttameðferð hjá sýslumanni, og þar skiptir máli hvernig málið er lagt upp frá byrjun.
Við byrjum á að fara yfir stöðuna með þér, safna gögnum og meta hvað er raunhæft. Sé málið dómtækt semjum við stefnu og kröfur, óskum eftir dómkvaðningu matsmanns og fylgjum málinu eftir í gegnum aðalmeðferð. Fáist gjafsókn greiðir ríkissjóður lögmannskostnað þinn.