Deilur um börn eru þyngstu mál sem fólk lendir í. Þau snúast um daglegt líf, um hvar barnið býr, hverja það hittir og hver tekur ákvarðanir um skóla, heilsu og ferðalög. Málsvari hefur um árabil rekið forsjár-, umgengnis- og barnaverndarmál fyrir sýslumanni, héraðsdómi og Landsrétti og sinnir jafnframt lögmannsstörfum fyrir Foreldrajafnrétti, félag um jafna stöðu foreldra.
Hvað gerum við?
- Ráðgjöf á fyrstu stigum, áður en deilan harðnar, um hvaða leiðir standa opnar.
- Samningar um forsjá, lögheimili og umgengni og staðfesting þeirra hjá sýslumanni.
- Sáttameðferð og umgengnismál hjá sýslumanni, þar á meðal kröfur um dagsektir þegar umgengni er tálmuð.
- Forsjár- og lögheimilismál fyrir dómi, þar á meðal kröfur um forsjá og umgengni til bráðabirgða meðan mál er rekið.
- Faðernis- og meðlagsmál.
- Barnaverndarmál, bæði fyrir foreldra og sem talsmaður barns.
Hvernig gengur málið fyrir sig?
Flest mál byrja hjá sýslumanni. Foreldrum er skylt að leita sátta áður en mál um forsjá, lögheimili eða umgengni fer fyrir dóm, sbr. 33. gr. a barnalaga nr. 76/2003. Náist ekki samkomulag gefur sýslumaður út vottorð um að sáttameðferð sé lokið og þá má höfða mál. Fyrir dómi er oftast dómkvaddur sálfræðingur sem metur forsjárhæfni og tengsl barnsins við foreldra sína. Dómurinn sker úr eftir því sem barninu er fyrir bestu, sbr. 34. gr. sömu laga.
Hvað kostar þetta?
Í forsjár- og umgengnismálum fyrir dómi er algengt að gjafsókn fáist þegar tekjur eru undir viðmiðunarmörkum, sbr. XX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Við metum strax í upphafi hvort þú eigir rétt á gjafsókn og sjáum um umsóknina. Nánar á síðunni um gjafsókn.
Forsjármál
Forsjá og lögheimili barns, sameiginleg forsjá og forsjá til bráðabirgða. Hvað dómstólar líta til og hvernig málið er rekið.
Nánar 02Umgengnismál og tálmun
Réttur barns til umgengni við báða foreldra, umgengnisúrskurðir sýslumanns, dagsektir og aðför þegar umgengni er tálmuð.
Nánar 03Skilnaður og fjárskipti
Skilnaður að borði og sæng, lögskilnaður, fjárskipti hjóna og sambúðarslit. Aðstoð við samninga og málarekstur þegar ekki semst.
Nánar 04Barnaverndarmál
Aðstoð við foreldra í málum hjá barnavernd, aðgangur að gögnum, andmæli, kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála og mál um forsjársviptingu fyrir dómi.
Nánar