Beint í efni
Málsvari Lögmannsstofa

Fyrirtæki, skattamál og eftirlit

Aðstoð við fyrirtæki sem fá bréf frá Skattinum um endurákvörðun, peningaþvættiseftirlit eða rannsókn. Andmæli, kærur til yfirskattanefndar og vörn í skattamálum.

Bréf frá Skattinum með stuttum fresti er stund til að leita ráða áður en svarað er. Andmæli sem eru vel rökstudd í upphafi geta ráðið úrslitum á síðari stigum, hvort sem er hjá yfirskattanefnd, fyrir dómi eða í refsimáli. Málsvari hefur á síðustu misserum aðstoðað fyrirtæki sem sætt hafa endurákvörðun skatta og eftirliti stjórnvalda og vinnur með reyndum sérfræðingum þegar málin kalla á það.

Endurákvörðun skatta

Skatturinn getur endurákvarðað skatta sex ár aftur í tímann og bætt við álagi og dráttarvöxtum. Sé grundvöllur endurákvörðunar umdeildur, til dæmis um hvort tekjur af sölu vátrygginga í umboði séu undanþegnar virðisaukaskatti samkvæmt lögum nr. 50/1988, er andmælafresturinn rétti tíminn til að leggja fram rökstuðning. Úrskurði Skattsins má kæra til yfirskattanefndar innan þriggja mánaða. Kæran frestar ekki innheimtu, svo samhliða þarf að huga að greiðslufyrirkomulagi.

Peningaþvættiseftirlit

Bílasölur, fasteignasölur, bókhalds- og endurskoðunarstofur, listmunasalar og fleiri eru tilkynningarskyldir aðilar samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Skatturinn hefur eftirlit með þeim og hefur lokið fjölda mála með sáttum og stjórnvaldssektum. Við gerum úttekt á því hvort áhættumat, verkferlar og áreiðanleikakönnun standist kröfur, og gætum hagsmuna fyrirtækisins þegar eftirlit er hafið.

Rannsókn og refsimál

Þegar mál er sent héraðssaksóknara eða skattrannsóknarstjóra hefur það breyst í sakamál með þeim réttindum sem því fylgja, þar á meðal rétti til verjanda frá fyrstu skýrslutöku. Stjórnendur og fyrirtæki þurfa þá hvort sinn lögmann. Sjá einnig sakamál og bótakröfur.

Fyrir fyrirtæki almennt

Auk skattamála sinnir stofan gerð og yfirferð samninga, innheimtu, ágreiningi milli hluthafa og ráðgjöf við rekstur félaga. Fyrsta samtalið kostar ekkert og tímagjald er gefið upp fyrir fram.

Fyrsta símtalið kostar ekkert

Viltu ræða þitt mál?

Hringdu á opnunartíma eða sendu tölvupóst. Við segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum aðstoðað og hvað það er líklegt til að kosta.