Beint í efni
Málsvari Lögmannsstofa

Persónuvernd

Hvaða upplýsingar malsvari.is safnar, hvernig Google Analytics er notað og hvernig stofan fer með upplýsingar frá skjólstæðingum.

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Málsvari slf., kt. 660417-0360, Laugavegi 182, 105 Reykjavík, netfang malsvari@malsvari.is.

Vefurinn

Vefurinn safnar engum persónuupplýsingum um þig sjálfur. Hann notar Google Analytics til að telja heimsóknir, sjá hvaða síður eru lesnar og hvort smellt er á símanúmer eða netfang. IP-tölur eru styttar áður en þær eru vistaðar og engar upplýsingar eru tengdar nafni. Þessari mælingu fylgja vafrakökur frá Google. Aðrar vafrakökur eru ekki notaðar og engar auglýsingakökur eru settar.

Viljir þú ekki að heimsókn þín sé talin getur þú notað viðbót Google við vafrann sem slekkur á Analytics, eða stillt vafrann þinn til að hafna vafrakökum þriðja aðila.

Samskipti við stofuna

Þegar þú hringir eða sendir tölvupóst vinnum við þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té til að meta og sinna máli þínu. Upplýsingar um skjólstæðinga og mál þeirra eru bundnar þagnarskyldu lögmanna samkvæmt 22. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn og eru varðveittar eins lengi og skyldur lögmanns og bókhaldslög krefjast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar stofan geymir um þig, fá þær leiðréttar og eftir atvikum eytt, sbr. lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Beiðnir berast á malsvari@malsvari.is. Kvörtun má beina til Persónuverndar, personuvernd.is.

Fyrsta símtalið kostar ekkert

Viltu ræða þitt mál?

Hringdu á opnunartíma eða sendu tölvupóst. Við segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum aðstoðað og hvað það er líklegt til að kosta.