Málsvari veitir alhliða lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hér að neðan eru þau svið sem stofan sinnir mest. Sértu ekki viss um hvar þitt mál á heima er einfaldast að hringja, fyrsta símtalið kostar ekkert og þar kemur í ljós hvort og hvernig við getum aðstoðað.
Fjölskyldu- og barnaréttur
Forsjá, lögheimili, umgengni, skilnaður og barnavernd. Lögmaður sem rekur mál fyrir sýslumanni og dómstólum og setur hagsmuni barnsins í fyrsta sæti.
Nánar 02Sakamál og bótakröfur
Verjandi á rannsóknarstigi og fyrir dómi, réttargæslumaður brotaþola og bótakröfur á hendur ríkinu vegna handtöku, leitar og annarra þvingunaraðgerða lögreglu.
Nánar 03Slysa- og skaðabótamál
Bætur vegna líkamstjóns eftir umferðarslys, vinnuslys, frítímaslys og læknamistök. Tjónstilkynningar, mat á örorku og uppgjör við tryggingafélög.
Nánar 04Erfðamál og dánarbú
Erfðaskrár, kaupmálar, einkaskipti og opinber skipti dánarbúa, ágreiningur milli erfingja og fjárræðismál.
Nánar 05Fasteignamál
Gallar í fasteignakaupum, ágreiningur í fjöleignarhúsum, húsaleigumál, útburður og nauðungarsala til slita á sameign.
Nánar 06Fyrirtæki, skattamál og eftirlit
Aðstoð við fyrirtæki sem fá bréf frá Skattinum um endurákvörðun, peningaþvættiseftirlit eða rannsókn. Andmæli, kærur til yfirskattanefndar og vörn í skattamálum.
Nánar