Beint í efni
Málsvari Lögmannsstofa

Barnaverndarmál

Aðstoð við foreldra í málum hjá barnavernd, aðgangur að gögnum, andmæli, kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála og mál um forsjársviptingu fyrir dómi.

Þegar barnavernd hefur afskipti af fjölskyldu eiga foreldrar rétt á að vita hvað er borið á þá, sjá gögn málsins og tjá sig áður en ákvarðanir eru teknar. Barnaverndarlög nr. 80/2002 og stjórnsýslulög nr. 37/1993 tryggja þennan rétt, en í reynd þarf oft lögmann til að hann sé virtur.

Hvað gerum við?

  • Fylgjum þér á fundi með barnavernd og gætum þess að rétt sé staðið að málsmeðferð.
  • Krefjumst aðgangs að gögnum málsins og kærum synjun til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kærufrestur vegna synjunar um gögn er 14 dagar, svo bregðast þarf hratt við.
  • Gerum athugasemdir við greinargerðir og meðferðaráætlanir og andmælum ákvörðunum um vistun barns utan heimilis.
  • Rekum mál fyrir dómi þegar krafist er forsjársviptingar eða vistunar gegn vilja foreldra. Í þeim málum skipar dómari foreldri talsmann og kostnaður greiðist úr ríkissjóði.

Réttur til lögmanns

Áður en úrskurður er kveðinn upp í barnaverndarmáli eiga foreldrar og barn rétt á fjárstyrk frá barnaverndarþjónustu til að greiða fyrir lögmannsaðstoð, sbr. 2. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, eftir reglum sem taka mið af efnahag og umfangi málsins. Við segjum þér strax hvort þitt mál fellur þar undir og sækjum um styrkinn með þér.

Fyrsta símtalið kostar ekkert

Viltu ræða þitt mál?

Hringdu á opnunartíma eða sendu tölvupóst. Við segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum aðstoðað og hvað það er líklegt til að kosta.