Beint í efni
Málsvari Lögmannsstofa

Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður

Eigandi Málsvara, héraðsdóms- og Landsréttarlögmaður. Fjölskyldu- og barnaréttur, sakamál, skaðabótaréttur, erfðaréttur, fasteignir og vinnuréttur.

Hilmar Garðars Þorsteinsson er lögmaður og eigandi Málsvara. Hann lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 með fyrstu einkunn og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum árið 2013 og fyrir Landsrétti árið 2025. Hann er félagi í Lögmannafélagi Íslands.

Starfsferill

Ár Starf
2017 til dagsins í dag Málsvari lögmannsstofa, eigandi
2012 til 2017 Fulltrúi með lögmannsréttindi hjá Lögmönnum Laugavegi 3, meðal annars hjá Láru V. Júlíusdóttur hæstaréttarlögmanni
2010 til 2011 Forsætisráðuneytið, stjórnarráðsfulltrúi

Hilmar hefur sinnt stundakennslu í vinnurétti við Háskóla Íslands, situr í stjórn Foreldrajafnréttis og veitir þar ókeypis lögfræðiráðgjöf um forsjár- og umgengnismál. Meistararitgerð hans fjallaði um neikvætt félagafrelsi á sviði vinnuréttar og hann hefur ritað greinar um lögfræðileg efni í blöð og tímarit.

Réttarsvið

  • Barnaréttur: forsjá, umgengni, faðerni og lögheimili
  • Barnavernd
  • Fjölskylduréttur: hjúskapar- og sambúðarmál, skilnaður og fjárskipti
  • Sakamál: verjendastörf og réttargæsla
  • Skaðabótaréttur og líkamstjón
  • Erfðaréttur og skipti dánarbúa
  • Fasteignir og húsaleiga
  • Vinnuréttur
  • Skiptastjórn þrotabúa

Menntun

  • 2025 Málflutningsréttindi fyrir Landsrétti
  • 2013 Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum
  • 2012 Háskóli Íslands, mag. jur.
  • 2009 Háskóli Íslands, BA í lögfræði
  • 2007 Menntaskólinn í Reykjavík, stúdentspróf

Tungumál

Íslenska, enska, þýska, danska og norska.

Netfang: hilmar@malsvari.is. Sími 533 3222.

Fyrsta símtalið kostar ekkert

Viltu ræða þitt mál?

Hringdu á opnunartíma eða sendu tölvupóst. Við segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum aðstoðað og hvað það er líklegt til að kosta.